CenterHotel Þingholt er með 50 hótelherbergi, öll nútímalega innréttuð og er innblástur stílhreinnar hönnunarinnar fenginn úr íslenskri náttúru.
Á CenterHotel Þingholti eru fjórar mismunandi tegundir af herbergjum: Standard herbergi , Deluxe herbergi, Júníor Svítur og Loftsvítur.
Á Deluxe herberjum er val milli leðursófa eða baðkars , sem í sumum herbergjum er staðsett við hlið rúmsins inni í svefnherberginu sjálfu.
Júníor Svíturnar eru bæði með sófa og baðkari og Loftsvíturnar, sem eru mjög rúmgóðar, eru á tveimur hæðum, svefnherbergið á efri hæð og setustofa á neðri hæð.