Panorama er glæsilegt veitingahús frábærlega staðsett í hjarta borgarinnar á efstu hæð CenterHotel Arnarhvols. Útsýnið er magnað þar sem fjallahringurinn og Sundin blá blasa við matargestum í allri sinni dýrð.
Við leggjum metnað okkar í að bjóða upp á veislumat á viðráðanlegu verði hvert sem tilefnið er – rómantískt stefnumót, fjörugt kvöld með vinunum eða fjölmenn fjölskyldusamkoma.